Skuldalækkun heimila

Punktar

Skuldir heimilanna hafa verið lækkaðar um 200 milljarða. Þar munar mest um hæstaréttardóma um ólögmæti lánskjara. Þar hurfu 150 milljarðar. Einnig hafa lánin lækkað um 50 milljarða vegna stjórnvaldsaðgerða. Ríkið hefur ekki efni á meiru, enda búið að skattleggja upp í topp og spara rekstur niður í botn. Þeir, sem krefjast meiri lækkunar skulda, ættu að gera betur grein fyrir, hvernig eigi að útvega aurinn. Vissulega má reyna að sækja aukið réttlæti til Evrópudómstóla. Kannski stenzt verðtrygging ekki evrópska skoðun. Samt sýnist mér vísitala skulda sanngjörn upp að sama marki og vísitala launa.