Skrípaleikur dómara

Punktar

Það er ekki hlutverk Sérstaks saksóknara að tryggja, að meðdómari sé hæfur. Það er hlutverk þess, sem skipar meðdómarann, það er að segja aðaldómara hvers máls. Guðjón St. Marteinsson átti að velja hæfan meðdómara, en gerði ekki. Í sjónvarpsviðtali kom skýrt í ljós, að Sverrir Ólafsson hatar Sérstakan saksóknara. Væntanlega vegna bróður síns, Ólafs í Samskipum. Guðjón sagði ekki einu sinni hinum dómaranum frá hugsanlegu vanhæfi eða óhæfi Sverris Ólafssonar. Og ekki heldur Ólafi Þór Haukssyni saksóknara. Guðjón og Sverrir bera ábyrgð á fúlum skrípaleik Aurum-málsins.