Skriðið fyrir rottum

Punktar

Rotturnar flýja, 28 stóreignamenn hafa flúið land til að þurfa ekki að borga 52 milljónir í auðlegðarskatt. Farið hefur fé betra. En við þurfum að fá að vita, hverjir þetta eru, svo að við getum kvatt þá við hæfi. Auðvitað tíma auðmenn ekki að taka þátt í kostnaði við samfélagið, aðeins nota þjónustu þess. Það er gömul saga og ný. En við eigum krók á móti bragði. Setja þarf lög um, að eigendur, sem búsettir eru erlendis, borgi sérstakan eignaskatt, sem jafngildir töpuðum auðlegðarskatti. Allt of lengi af yfirvöld skriðið fyrir rottum í stað þess að sýna þeim fulla hörku. Íslenzkar stóreignir eru hvort sem er að mestu leyti stolið fé, afleiðing forgangs að bankaglæfrum.