Skrautlegur ferill

Punktar

Sigmundur Davíð er ofdekraður og hrokafullur pabbastrákur, sem telur gagnrýni vera loftárásir og einelti. Rífst í hvert sinni, sem hann opnar munninn. Var áður eilífðarstúdent, sem ráfaði árangurslaust milli skóla í ýmsum löndum. Á endanum keypti pabbinn stjórnmálaflokk fyrir ofvaxna barnið. Framsókn var áður tækifærishneigður flokkur, en nú tók steininn úr. Fáar hömlur voru á ímyndunum  í sýndarveruleika Sigmundar Davíðs í pólitíkinni. Þorpsídjótarnir létu hann ginna sig, en hafa núna séð að sér. Því er hann núna eins og mara á almenningi, forsætisráðherra með frosið 10% fylgi. Þegar búinn að valda þjóðinni stórtjóni.