Skotglaðir og snargalnir

Punktar

Furðulegt er, að Norðmenn ákveði að hætta að gefa okkur jólatré, en gefi okkur í staðinn 200 hríðskotabyssur. Hver ákvað þetta og hver bað hann um það? Hvers vegna hafa einstakir lögreglustjórar ákveðið „sjálfstætt“ að vopnvæða löggubíla á sínu svæði? Hvers vegna neitar Hlynur Snorrason að tjá sig um vopnin í bílum hjá honum á Vestfjörðum? Hvers vegna fór þetta svona leynt? Hvers vegna kannast enginn við neitt í innanríkisráðuneytinu? Allir hafa misst málið. Nægja löggu ekki venjulegar byssur til að skjóta geðsjúklinga á færi? Hver ákvað þjálfun löggumanna í meðferð á hríðskotabyssum? Er allt löggukerfið orðið snargalið?