Skelegg sérfræði í hótunum

Punktar

Sællar minningar sagði Davíð í hruninu, að Rússar mundu koma okkur til hjálpar með þúsundir milljarða. Höfðu sagt honum það í símann og því skyldum við bara gefa skít í Vesturlönd. Nú hefur annað stórhveli í ruglinu kallað til önnur heimsveldi, Kína og Indland. Ólafur Ragnar Grímsson hefur í Financial Times í hótunum við Breta. Segir þeim að passa sig, því að Kína og Indland muni koma inn á Atlantshaf úr norðri, þegar ísinn bráðnar. Gordon Brown á ekki von á góðu, þegar Rússland, Kína og Indland taka saman höndum. Það er allur munur að hafa á sínu bandi skelegga sérfræðinga í hótunum.