Sjóðurinn rústaði Rússlandi

Punktar

Árið 1991 hófst ólán Rússlands. Jeltsín náði völdum af sovétkommunum og hóf frjálshyggju. Að ráði Alþjóða lífeyrissjóðsins voru eigur ríkisins settar á brunaútsölu. Núverandi víkingar keyptu þær upp á krít og borguðu síðan með drasli úr keyptum eignum. Með óðaverðbólgu var eytt lífeyri fólks. Á tímum kommanna höfðu allir þó sitt mánaðarlega skítakaup. Eftir innreið sjóðsins varð fólk að svelta. Árið 1998 veitti Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn síðan náðarhöggið. Hélt gengi rúblunnar niðri, lét lánsfé renna til víkinganna, margfaldaði stéttaskiptingu. Sjóðurinn gerði Rússland gjaldþrota árið 1999.