Fáir hafa sjálfstraust á borð við Ásdísi Rán Gunnarsdóttir. Í bloggi hennar segir hún um sjálfa sig: “Sjóðheit og seiðandi á bikiní í Bláa Lóninu”. Með linnulausu og takmarkalausu sjálfshóli er hægt að komast langt. Ég sé ekki betur en að Ásdís Rán hafi komizt vel áfram í lífinu. Og hún er vel að því komin. Hún er fínt dæmi um, hvernig fólk verður frægt af því að vera frægt. Við höfum í nokkur misseri haft tækifæri til að fylgjast með sigrum Ásdísar á búlgörskum hjúkkum og útsendurum mafíósa og öðrum skunkum. Allan vanda leysir ofurgyðjan með brosi á vör og svarar í þaula spurningum fréttamanna.
