Siðlaus forsætiskontór

Punktar

Kringum leikendur farsans eru hópar trúaðra lokaðir inni í sömu sápukúlu. Þar þrautlesa útskýrarar greinar í lögum til að túlka út og suður innan ramma laga. Senda erlendum fjölmiðlum þvætting um, að leiðtogi lífs þeirra hafi ekki sagt af sér. Vilja ekki vita af kröfu fólks um siðferði. Sápukúlufólkið er að drepa lýðræðið. Inn í sápukúluna ráfar ráðuneytisstjórinn. Erlendis eru þeir verðir góðra siða. Heilbrigðir vita, að pólitíkus getur ekki leyft sér að fela fé á aflandseyjum. Að annað hvort segir ráðherra af sér eða ekki, en ekki hvort tveggja. Að ekki er hægt að semja ýmis kúgunarskjöl fyrir geðveikan ráðherra.