Siðblinda vondafólksins

Punktar

Vondafólkið hnussar út af góðafólkinu. Spyr, hvers vegna það vilji ekki hjálpa hinum og þessum, úr því að það vilji hjálpa öðrum. Til dæmis vilji það lána fasteignir til flóttamanna, en hafi ekki boðið innlendum fátæklingum hið sama. Vondafólkinu hefur samt aldrei dottið í hug að hjálpa neinum. Það er upptekið af að grilla og græða fyrir sig, stofna einokun í skjóli ríkisins. Góðmennska er bara fyrir hina. Vondafólkið telur sig mega skipuleggja, hverjum góðafólkið skuli hjálpa. Til að geta vera í hópi vondafólksins þarf nefnilega magnaða siðblindu. Sem mér sýnist eiga sér kjörlendi í Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.