Það er ævintýralega ruglað að afskrifa 80 milljarða af skuld fyrirtækja Ólafs Ólafssonar og 30 milljarða af skuld fyrirtækja Bónusfeðga. Aðeins veruleikafirrtur og siðblindur bankastjóri mundi láta sér detta það í hug. Finnur Sveinbjörnsson lét sér þar á ofan detta í hug að afhenda skálkunum aftur fyrirtækin. Af því að þeir séu svo færir í að reka fyrirtækin! Þarf ekki að fara með hann til læknis? Hvernig er hægt að hafa bankastjóra, sem hvað eftir annað storkar almennu velsæmi í samfélaginu? Er ekki hægt að velta þessum sérstæða bankastjóra úr sessi í nýrri búsáhaldabyltingu?
