Séríslenzka hagfræðin

Punktar

Í skjóli eitraðrar hagfræði á vegum Davíðs Oddssonar og Sjálfstæðisflokksins var Ísland skafið innan. Gæludýr stefnunnar tóku öll völd í bönkunum. Létu önnur gæludýr leika lausum hala í lánsfé. Skófu bankana að innan, komu óorði á þjóðina erlendis. Sendu stolið lánsfé til aflandseyja og skildu skuldirnar eftir á gömlum kennitölum í skúffum. Ofan á hrun Davíðs kom Seðlabankastjóri Jóhönnu. Veitti bófunum 20% gengisafslátt í verðlaun fyrir að koma með þýfið til baka. Til að kaupa upp atvinnulífið fyrir slikk. Nærri allt glæpagengi banka og útrásar leikur enn lausum hala. Rakið efni í leikhúsi fáránleikans.