Við þurfum ekki að óttast lengur. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur lært af reynslunni. Hann heimtar ekki lengur, að Íbúðalánasjóður verði einkavæddur. Heimtar ekki heldur að velferðarkerfinu verði rústað. Hann vill búa til sex milljarða dollara lánapakka með aðstoð Norðurlandanna og Japans. Kröfur sjóðsins snúast um, að bankareglur verði eins og í öðrum löndum og að hrunið verði rannsakað. Ennfremur að bankarnir verði einkavæddir, en ekki fyrir neinn tilgreindan tíma. Engar refsiaðgerðir eru í kröfunum. Þetta var upplýst í Financial Times í hádeginu í dag. Nú fer senn að sjást til sólar.