Kvótagreifarnir í grátkór útgerðar eru óþarfir milliliðir. Eiga ekki lengur skipin, skipstjórana og áhafnirnar. Eiga ekki lengur vinnsluna, verkstjórana og fiskvinnslufólkið. Þetta er allt í skuld vegna óhófs og græðgi greifanna. Skipin og fiskvinnslan, skipstjórarnir og verkstjórarnir, sjómennirnir og fiskvinnslufólkið geta rekið þetta án greifanna. Ríkisstjórnir Geirs og Jóhönnu settu hundruð milljarða í bankana til að koma þeim á kjöl eftir lán til alls kyns greifa. Lágmarkskrafa er, að ríkið eignist í staðinn veðin í sjávarútvegi. Hlusti ekki á grátkórinn og segi svo bara bless við afæturnar.
