Samsafn ömurðar

Punktar

Ég hef aldrei séð þvílíkt samsafn ömurðar og núverandi lénsherra landsins. Siðblindur hópur lygara, svikara og loddara dregur dám af Íslandsmeistaranum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Fæstir eru þeir þó eins staffírugir út í eitt. Sumir roðna, þá sjaldan þeir segja satt, einkum Frosti Sigurjónsson. Ofan á siðblinduna eru margir þeirra of heimskir til að gegna ábyrgðarstöðum. Aðrir eru of mikil fól til að hafa mannaforráð, svo sem Sigurður Ingi Jóhannsson. Sumir þjást af þessu hvoru tveggja, til dæmis Gunnar Bragi Sveinsson og Vigdís Hauksdóttir. Sannarlega fylking „óframfylgjanlegra ómögulegheita“.