Sálufélagar forseta vors

Punktar

Í STUNDINNI er upplýst, að í nýbirtum leyniskjölum stjórnvalda í Sádi-Arabíu sé Íslands getið að nokkru. Wikileaks hefur birt þessi skjöl. Þar kemur fram hið eilífa nudd Ólafs Ragnars Grímssonar utan í miðaldagreifana á Arabíuskaga. Jafnast á við dálæti hans á einræðisgreifum í Moskvu og Peking. Á fundi Ólafs Ragnars með Ibrahim S. I. Alibrahim sendiherra var samið um 130 milljón króna framlag Sáda til byggingar mosku róttækra wahabíta í Reykjavík. Forseti okkar hefur ítrekað reynt að koma á nánum samskiptum við verstu einræðisgreifa heims. Um leið hefur hann lýst frati á ágæta nágranna okkar í lýðræðisríkjum Evrópu.