Sadistar í menntaskólum

Punktar

Samkvæmt bloggi Ragnars Þórs Péturssonar eru busavígslur í menntaskólum að færast í sadistaform fyrri ára. Birtir lista yfir aðgerðir, sem notaðar eru í einum skóla til að niðurlægja nýnema. Eru komnar óralangt út fyrir áratuga hefð tolleringa Menntaskólans í Reykjavík. Hann nefnir ekki skólann, sem er miður, því að skólameistarar bera ábyrgð á sadismanum. Nítján ára fólk hefur því miður ekki náð þroska til stýra busavígslum og leiðist oft út öfgar. Rektorar þurfa að halda aga á þeim og skrúfa fyrir hvers konar sadisma. Að öðrum kosti ber þeim að víkja úr embætti fyrir þeim, sem ráða við sadistana.