Hermann Guðmundsson er rugludallur ársins. Forstjóri N1 þóttist ætla að sýna bókaútgefendum, hvernig ætti að gefa út bækur. Gaf út sjálfsfróunarbækur þekktra tapara og N1 tapaði á því fimmtán milljónum króna. Mikil Þórðargleði er á fésbókinni yfir þessum örlögum Hermanns. Hann hefur þetta árið verið ræðumaður á morgunverðarfundum vitleysinganna, sem reka einokunarfyrirtæki og þykjast vera í bisness. Bókaútgáfa er harður bisness, en benínsala er einokun fyrir pilsfalda-kapítalista. Kjáninn varð fyrir þeirri ógæfu að vera flaggskip pilsfaldanna. Þess vegna hlæja menn óspart að honum á fésbókinni.