Einkunnarorð Íslendinga stýra reiðinni út í Evrópu og ríkisábyrgðina á IceSave. Risin er alda afneitunar, vænisýki og þjóðrembu. Menn telja sig saklausa af hruninu, þótt hrunverjar væru endurkjörnir hvað eftir annað. Fjölmennir hópar bera ábyrgð á þessu og neita að horfast í augu við það. Fjölmennir hópar saka erlendar ríkisstjórnir og fjölþjóðasamtök, jafnvel heilar þjóðir, um að ofsækja Ísland. Fjölmennir hópar eru sammála um, að Íslendingar séu klárastir og beztir allra. Neita að viðurkenna, að dæmin sýna allt annað. Með þessar byrðar erum við bara forpokaðir eyjarskeggjar.
