Röng lög og óþolandi

Punktar

Snillingar hrunsins skipta bókhaldi sínu í tvö félög, annað fyrir skuldir og hitt fyrir eignir. Láta síðan skuldafélagið rúlla, oft með aðstoð banka og jafnvel að ósk hans. Halda svo eignum eftir í hinu félaginu. Siðferðilega rangt og óþolandi. Samt aðhafast ríkisstjórn og Alþingi ekkert til að gera athæfið refsivert og ólöglegt. Skýrt dæmi um, að gömul lög ná ekki yfir nýja hegðun. Líka skýrt dæmi um, að pólitíska yfirstéttin hefur ekki áhuga á að afnema refsileysi yfirstéttar. Lagatæknar á borð við Spanó og Líndal dásama langsóttar textaskýringar. En þjóðin fær óbeit á röngum og óþolandi lögum.