Rógur Lilju Mósesdóttur

Punktar

Lilja Mósesdóttir birti í gær á fésbókinni fráleitan róg um Jóhann Hauksson, fréttaskýranda DV. Gefur í skyn, að hann sé á launum hjá fjármálaráðuneytinu við að sverta Lilju og aðra stjórnarandstæðinga. Einu rökin eru afar þunn, að Jóhann hafi einu sinni sótt um starf hjá ráðuneytinu. Ekki frambærileg þvæla, ekki einu sinni í pólitík. Ég þekki af eigin reynslu, að Lilja er óvenjulega ósátt við allar efasemdir um sig. Þolir eingöngu stæka aðdáendur á fésbókinni. Páll Vilhjálmsson endurómar svo róg Lilju í morgun án þess að bæta við rökum. Ég hef ört vaxandi efasemdir um Lilju sem stjórnmálamann.