Ríkisábyrgðir eru óeðlilegar

Punktar

Rétt er hjá Kristjáni Þór Júlíussyni þingmanni, að ríkisstjórnir eiga ekki að ákveða ríkisábyrgðir. Fjárlög væru marklaus, ef ábyrgðir mættu skuldbinda ríkið án aðkomu Alþingis. Risavaxnar ríkisábyrgðir, sem stjórnir Geirs H. Haarde og Jóhönnu Sigurðardóttir veittu, eru óeðlilegar og ómerkar. Gildir um ábyrgðir á bönkum, innistæðum fólks, tryggingafélögum, orkuverum og öðrum gæludýrum. Fjárveitingavaldið er Alþingis. Ríkisstjórnir geta ekki tekið fjárhagslega áhættu án samþykktar Alþingis. Þótt það hafi tíðkazt, er það samt óeðlilegt. Bófar verða sjálfir að ábyrgjast fyrirtæki, sem þeir reka.