Reglugerðin verði afskrifuð

Punktar

Krossinn í Vonarskarði er minnisvarði um ónýta stjórnsýslu. Sett er upp ferli til að tryggja góða stjórnsýslu, en ekkert tekið mark á því. Þannig eru auglýst störf og síðan ráðinn vinur og flokksfélagi ráðherrans. Eða þá að auglýst er eftir athugasemdum um reglugerð og síðan ekki tekið neitt mark á þeim. Þannig var reglugerðin fáránlega um Vatnajökulsþjóðgarð, sem bannar ferðir um Vonarskarð. Stjórnarnefnd þjóðgarðsins neyddist til að auglýsa eftir athugasemdum, fékk 6000 bréf og tók ekkert mark á þeim. Rétt er að afskrifa þessa reglugerð og reka hina spilltu stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.