Dauðaþögn ríkti hjá stjórninni í sumar, þegar Ögmundur Jónasson reyndi að afla fylgis stjórnarandstöðunnar við IceSave fyrirvarana. Sýndi henni alltof mikla linkind. Tapaði frumkvæði í pólitískri umræðu. Síðan missti hún bezta ráðherrann úr stjórninni, Ögmund sjálfan. Fylgið gufaði upp. Skyni skroppnir kjósendur kenndu stjórninni um vandræði sín. Smám saman vakna ráðherrar af doðanum þessa daga. Svandís Svavarsdóttir tugtaði græðgiskarla Suðurnesja og Orkuveitu. Árni Páll Árnason tugtaði frjálshyggjugaura Alþýðusambandsins. Vonandi vakna aðrir ráðherrar og láta svipuna ganga á óvinum þjóðarinnar.
