Prófum næstu ríkisstjórn Bretlands

Punktar

Rétt var að kalla sendinefndina heim. Ekki var hægt að láta hana hanga á hótelherbergi öllu lengur. Betra er að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fella ríkisábyrgðina og gefa sér síðan góðan tíma. Sættum okkur við, að ekki fáist fé til stórvirkjana næstu mánuði. Setjum viðræður við Bretland og Holland í hægan gír. Aðstæður hafa breyzt. Menn vilja hlusta meira en áður á Ísland. Segjum öllum, sem heyra vilja, að við viljum standa við lágmarksgreiðslu, en skilmálar viðsemjenda séu enn óviðunandi. Ríkisstjórn Gordon Brown og hann sjálfur þjást af aflsmunar-áráttu. Prófum heldur næstu ríkisstjórn Breta.