Prófkjör mútuþeganna

Punktar

Kjósendur í Reykjavík hafa nánast alltaf ákveðið, að Hrunflokkurinn skuli stjórna borginni. Með eða án hækju frá eins-fulltrúa-flokki. Þess vegna er hefð fyrir því, að Hrunflokkurinn stjórni borgarskipulaginu. Valdið hefur sogað til sín peninga frá fyrirtækjum, sem telja sig þurfa á þjónustu að halda. Frægasta dæmið er Landsbanki einkavinanna, sem fékk að skipuleggja lóð við Laugaveginn. Það skipulag var langt út af korti skipulagsreglna. Í þessu skyni grýtti bankinn hálfum og heilum milljónum í kosningabaráttu bæjarfulltrúa Hrunflokksins. Nú um helgina er prófkjör milli mútuþeganna.