Pólitíska Vaðlaheiðin

Punktar

Vaðlaheiðargöng eru þrælpólitísk. Þingmenn kjördæmisins rottuðu sig saman um framkvæmdina án eðlilegra prófana. Þær hefðu leitt í ljós hættu á köldu flóði og heitu flóði. En pólitíkusar þurfa ekki varfærni, þegar þeir reyna að kaupa fylgi kjósenda á landsbyggðinni. Vaðlaheiðargöng eru því í tómu tjóni um þessar mundir. Munu verða viðkomandi pólitíkusum banabiti. Enginn tekur lengur mark á Steingrími J. Sigfússyni og Kristjáni L. Möller. Þeir eru voldug forsenda í áhugaleysi kjósenda á flokkum þeirra. Samfylkingin og Vinstri græn reyndust stunda sama sérhagsmunapotið og Sjálfstæðis og Framsókn hafa ævinlega ræktað.