Heilsutrygginga-frumvarpið var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi með 220 atkvæðum gegn 215. Barack Obama forseti fór í þingið til að bjarga frumvarpinu og það tókst. Aðeins 39 demókratar greiddu atkvæði gegn því. Það var útvatnað í lokin, til dæmis fá stofnanir ekki fé, ef þær stunda fóstureyðingar. Samt er frumvarpið víðtækara en það, sem Bill Clinton reyndi að knýja fram 1993. Nú fer það fyrir öldungadeildina. Þetta eru dýrir dagar fyrir heilsutrygginga-fyrirtækin, sem moka fé í þingmenn til að stöðva málið. En plús í kladda Barack Obama, 36 milljónir manns fá heilsutryggingu.
