Össur í spillingunni

Punktar

Ekki skil ég, hvers vegna Össur Skarphéðinsson tekur aflóga krata fram fyrir 80 umsækjendur um verkefnastjórn Þróunarstofnunar í Malaví. Nokkrir höfðu ferilskrá, sem hentaði starfinu betur. Eins og venjulega, þegar þarf að svindla, var Capacent fengið til að gefa kratanum Guðmundi Rúnari Árnasyni meðmæli. Össur ráðherra er og hefur alltaf verið barn gamla tímans, þegar spilling krata gekk út á mannaráðningar. Sá tími á að vera liðinn og fagleg sjónarmið að hafa tekið við. Vonandi verður Össur ekki lengur í boði í næstu kosningum að vori. Þá losum við okkur við leifar af nátttröllum spillingar.