Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fór á hættulega braut í ræðunni á aðalfundi lífeyrissjóðanna. Taldi samfélagslega ábyrgð og skyldur eiga að víkja arðsemiskröfu til hliðar. Nóg hafa umsjónarmenn sjóðanna skert arðsemi þeirra, þótt ríkið krefjist þess ekki líka. Hlutverk sjóðanna er bara eitt, að tryggja ævikvöld sjóðfélaga. Þeir eiga aðeins að lána í verkefni, sem skila beztum arði. Ekki í glórulaust rugl stjórnvalda, hátæknisjúkrahús eða Vaðlaheiðargöng. Ræða Steingríms var full af þessum innihaldslausu frösum, sem einkenna örþreytta hugsun. “Samfélagslegur” er tízkuorð Steingríms núna.
