Örkolagreining búsetu

Punktar

Páll Theódórsson eðlisfræðingur hefur ítrekað bent á, að fornleifarannsóknir með örkolagreiningu hafi leitt í ljós byggð fyrir landnám 870. Reykjavík var í byggð að minnsta kosti hundrað árum fyrir landnám. Minjar um byggð fyrir landnám hafa fundizt á fleiri stöðum, svo sem í Vestmannaeyjum, Papey og í Reykholti. Örkolagreining er fremur nýleg aðferð við að finna aldur minja. Er auðveldari en frjókornagreiningin, sem notuð hefur verið um áratugi. Við vitum hins vegar ekki enn, hversu víðtæk og hversu fjölmenn byggð var hér fyrir svonefnt landnám. Fylgja þarf þessu eftir með meiri örkolagreiningu.