Meirihluti frambjóðenda til stjórnlagaþings er ágætlega frambærilegur. Það hefur ýtt undir óraunhæfar væntingar um, að eingöngu slíkir nái kjöri. Og að stjórnlagaþingið verði vingjarnlegur vinnustaður, þar sem fólk starfi saman. Slíkar væntingar eru óraunhæfar. Atkvæði munu dreifast út og suður um allan þennan ágæta hóp og fáir ná inn. Betri nýting verður á atkvæðum til lista fámennra hópa frambjóðenda, sem gæta hagsmuna. Til dæmis pólitískra hagsmuna eða hagsmuna kvótagreifa. Þeir munu því komast inn á þingið. Tími þess fer í rifrildi milli talsmanna sérhagsmuna og þeirra, sem vilja hlíta þjóðfundi.