Ómar Ragnarsson stjórnlagaráðsmaður er á hálum ís í blogginu. Vill ekki, að ráðið fylgi tillögu þjóðfundarins um eitt kjördæmi fyrir allt landið. Semur hugmyndafræði um minnihlutahópa með sérréttindi. Hvað eru minnihlutahópar? Er landsbyggðin minnihlutahópur? Eru kvótagreifar minnihlutahópur? Sérréttur minnihlutahópa fer skjótt út af kortinu. Á þjóðfundinum kom ekki fram, að landsbyggðin væri minnihlutahópur, sem þyrfti sérstök réttindi umfram aðra. Ómar ætti ekki að tefla hugsjón þjóðfundarins í tvísýnu. En gerir það samt með því að framleiða hugmynd um sérstaka kosningameðferð landsbyggðarinnar.