Aðalritstjóri Tímans og kraftaverkamaður Ólafs Jóhannessonar hefur hrundið af stað íÍ blaði sínu herferð gegn Kristjáni Péturssyni, deildarstjóra tollsins á Keflavíkurflugvelli. Í greinum og nafnlausum lesendabréfum er Kristján sakaður um óhæfilegan dugnað við rannsókn og uppljóstrun sakamála.
Enginn vafi er á, að Kristinn Finnbogason gerir þetta með vitund og vilja Ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra, æðsta yfirmanns hins hataða Kristjáns Péturssonar. Er þetta leiðindamál eett dæmið um, hve illa slæmur félagsskapur er að fara með ráðherrann.
Hin sjúklega aðför að Kristjáni Péturssyni náði einna lengst í grein merktri Oddi Ólafssyni blaðamanni. Þar var Kristján sakaður um að hafa farið langt út fyrir verksvið sitt í rannsókn ótal sakamála, ekki aðeins þeirra, sem snerta aðstandendur Tímans, heldur einnig ótal annarra.
Inn á milli línanna má lesa, að óleyfilegur dugnaður Kristjáns eigi meginþáttinn í uppljóstrun flestra þeirra alvarlegu auðgunarglæpa, sem upp hafa komizt. Ef þetta er rétt væri nær að gera Kristján að yfirmanni löggæzlu og tollgæzlu á Íslandi, heldur en aó veitast að honum með gamalkunnum kargaþýfisaðferðum Tímans.
Svo virðist sem farið sé að hitna óþægilega undir ýmsum skuggaöflum þjóðfélagsins. Þau virðóast ekki treysta á lipurð framsóknarmanna þeirra, sem ráða mestu í sakamálakerfinu. Þau vilja því koma Kristjáni úr starfi, svo að feimnismálin fari alls ekki í gang í sakamálakerfinu.
Tilraunin til að bola Kristjáni úr starfi er dæmd til að mistakast. Þjóðfélagið er að opnast á þessum síðustu mánuðum. Minni líkur eru á, að fjárglæframenn og aðrir glæpamenn geti látið stjórnmálamenn vernda sig gegn lögum og rétti eins og þeir hafa löngum getað gert.
Þorri lesenda Tímans hefur ógeð á skrifum blaðsins um Kristján Pétursson. Þau munu um síðir valda upphafsmönnum sínum vandræðum, því að einhvern tíma munu framsóknarmenn opna augun og byrja að moka flórinn.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið