Öld hryðjuverkanna

Punktar

Með hjálp Bandaríkjanna er Ísrael löngu orðið einn stærsti vandi mannkyns. Hegðun ríkisins er einstæð. Kosningabarátta Benjamin Netanjahu forsætis  snýst um að magna ofbeldi á Gaza. Telur það afla sér fylgi kjósenda. Því miður rétt mat; að baki því er hryðjuverkaþjóð, ekki bara hryðjuverkaríki. Yfirgengileg framganga hersins er studd af kjósendum, sem bera fulla ábyrgð á morðæðinu. Mitt í sprengjuregninu birtist Barack Obama og segir Bandaríkin styðja gerðir Ísraela. Engin furða er, þótt múslimar hati allt sem vestrænt er eins og pestina. Öld hryðjuverkanna er Ísrael og Bandaríkjunum að kenna.