Óhóf í ársskýrslu

Greinar

Í þessum dálkum hefur áður verið kvartað um óhóflegan íburð í ársskýrslum opinberra stofnana. Aðgæzla á þessu sviði er sérstaklega nauðsynleg í efnahagsástandi því, sem nú ríkir. Sameiginlegir sjóðir þjóðarinnar eru ekki nógu burðugir til að halda uppi íburði og flottræfilshætti.

Ársskýrslur opinberra stofnana og fyrirtækja eiga eins og skýrslur einkafyrirtækja að vera fjölritaðar á venjulegan pappír eftir vélrituðu handriti, heftar eða límdar án sérstaks íburðar í bókbandi.

Fyrir nokkrum dögum barst Vísi ársskýrsla, þar sem kastað er tólfunum í bruðli. Landsvirkjun hefur látið prenta skýrslu sína í öllum regnbogans litum á fínasta pappír, sem fáanlegur er. Skýrslan er þar á ofan sérhönnuð af auglýsingastofu. Hún kostar áreiðanlega nokkuð hundruð þúsund króna, ef ekki heila milljón.

Svona lagað gengur ekki í venjulegu árferði, hvað þá þegar allir verða að spara. Rafmagnsverð Landsvirkjunar er nógu hátt, þótt þessu óhófi sé ekki bætt ofan á.

Jónas Kristjánsson

Vísir