Rétt hjá Jóni Baldvin Hannibalssyni, að Árni Mathiesen og Halldór Ásgrímsson eru ekki heppileg útflutningsvara. Sá fyrri er kjáni og sá síðari er bófi. Báðir koma þeir óorði á orðstír Íslands, sem var þó hallur fyrir. Katrín Jakobsdóttir ber ábyrgð á endurráðningu Halldórs og Össur Skarphéðinsson ber ábyrgð á ráðningu Árna. Ráðherrarnir tveir sýna, að pólitíska yfirstéttin í landinu sér um sína, þótt í öðrum flokkum sé. Þar á ofan létu Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn sér sæma að forða sínum hrunverjum frá réttlátum málaferlum. Fjórflokkurinn er laus við siðferðisvitund og hefur ekkert lært.