Óhæfir hönnuðir þingsins

Punktar

Rangur dómur Hæstaréttar er harður dómur yfir þeim, sem stóðu að skipulagi kosninga til stjórnlagaþings. Sýnir vangetu þáverandi dómsmálaráðuneytis og núverandi Alþingis, undirbúningsnefndar þingsins og landskjörstjórnar. Nú verður að sníða af gallana, sem Hæstiréttur benti réttilega á. Ekki má hafa stjórnlagaþing af þjóðinni. Við þurfum að gera aðra tilraun og vanda betur til verka. Mörg dæmi benda til, að þjóðin sé ófær um að ráða málum sínum. Enda styður stór hluti hennar pólitíska hrunverja til illra verka. Gott stjórnlagaþing er ein fárra leiða okkar til að reka af okkur slyðruorðið.