Þegar bankakerfið hrundi, neyddist ríkið til að skuldsetja sig upp á hundruð milljarða til að hreinsa rústirnar. Það þýðir, að hækka þarf skatta á okkur öll. Við getum kallað það Davíðsskatta, en við þurfum samt að borga þá. Skil hins vegar ekki, af hverju fjármagnstekjuskattur er ekki hækkaður til jafns við launatekjuskatt. Það á að vera hornsteinn hins nýja Íslands, að fjármagn sé ekki æðra en vinna. Og ég skil ekki heldur, hvers vegna ríkisstjórnin er að lúffa í auðlindagjöldum fyrir trausti firrtu Alþýðusambandi. Þeir skattar eru eðlilegastir allra skatta. Ríkisstjórnina vantar meira sjálfstraust.
