Óð einbeitt út í hrun

Punktar

Kreppan á Íslandi byrjaði í október fyrir ári, tveimur mánuðum á undan Bandaríkjunum. Kom þá fram í samdrætti í sölu húsnæðis. Þróaðist hægt yfir í hrun. Ríkisstjórn og eftirlitsaðilar fylgdust ekki með, því að trúarsetning frjálshyggjunnar sagði ekki þörf á því. Markaðshagkerfið mundi leiðrétta sig sjálft. Ferlið er tveimur stjórnmálaflokkum að kenna og kjósendum þeirra. Í heilt ár gróf kreppan um sig. Innlendir og erlendir sérfræðingar veifuðu rauðu ljósi. En ríkisstjórnin óð einbeitt út í hrunið. Hlustaði ekki og sá ekki. Þannig framleiddi ríkisstjórnin hrunið.