Obama himpigimpi

Punktar

Barack Obama er himpigimpi og hefur alltaf verið. Að minnsta kosti síðan hann fór í framboð í fyrra skiptið. Dáleiðir fólk með froðu, en innihald að baki er ekkert. Lofaði öllu fögru, en hefur lítið efnt, heldur bara áfram prestlegri froðu. Gerólíkur Bill Clinton, sem hafði alvöru stefnu og burði til að fylgja henni fram. Enda snýst kosningabarátta Obama um, að kjósendur gefi honum annan séns. Þar með er viðurkennt, að hann misnotaði fyrri séns. Sérstakt, að forseti, sem fær á móti sér kolruglaða siðblindingja af hálfu repúblikana, skuli bara hafa rúmlega helmings fylgi. Dæmi um himpigimpi.