Nýjar tölur um hrunið

Punktar

Nýjar tölur um tjónið af bankahruninu koma frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Skuldir ríkisins hækkuðu úr 400 milljörðum í 1900 milljarða. Hækkunin svarar til eins árs landsframleiðslu eða 1500 milljarða. Þar af eru 700 milljarðar vegna IceSave, sem fara niður í 200 milljarða, þegar eignirnar innheimtast. Eftir stendur þá skuldaaukning ríksins upp á 1000 milljarða. Stærstu liðir hennar eru gjaldþrot Seðlabankans upp á 300 milljarða, gjaldþrot bankanna og sparisjóða upp á 300 milljarða og IceSave Landsbankans upp á 200 milljarða. Allt eru þetta grófar slumpatölur. Þær eru háar-, en samt viðráðanlegar.