Nú var of langt gengið

Punktar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þór Þórhallsson framsóknarþingmenn gengu of langt í morgun. Sökuðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis um landráð. Hafi hvatt norsku ríkisstjórnina til að lána Íslandi ekki 2000 milljarðana, sem framsóknarmenn töldu sig geta fengið gegnum norskan framsóknarþingmann. Framsóknarmenn verða að sætta sig við að hafa farið fýluferð til Noregs. Eiga að láta ógert að flækja aðra í málið. Þeir eiga að vita, hvenær grínleikur verður að harmleik. Sigmundi og Höskuldi ber að biðja Jóhönnu afsökunar nú þegar.