Nazistar Ísraels

Punktar

Nazistar fóru leynt með illvirki sín á Hitlerstímanum. Ísraelsmenn stunda þau fyrir opnum tjöldum. Óþverrinn nær inn á þjóðþing landsins. Ein öfgakerlingin heimtar, að konum sé útrýmt í Palestínu, svo þær eignist ekki fleiri efni í hryðjuverkabörn. Einn öfgakarlinn á þingi heimtar, að spítalar Palestínu séu rústaðir. Fólk í Ísrael safnast saman á hæðum til að klappa saman lófunum, þegar sprengjurnar falla. Helsjúkt ríki með geðveikum kjósendum útrýmir fólki í skjóli fársjúkra Bandaríkja. Fáránlegt er, að örlögin hafa umturnað Ísrael í skrímsli, er minnir í smáatriðum á allra verstu nazista fyrir sjötíu árum.