Næsta yfirstétt Íslands

Punktar

Nóg er til af hæfu fólki. Enn hefur enginn hæfur verið kallaður til starfa. Þegar byltingin rekur vesæla og hataða ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar, hef ég ýmsa kandídata í mikilvæg störf. Egill Helgason verði forsætis, Lilja Mósesdóttir fjármála, Guðmundur (Lobbi) Ólafsson viðskipta. Þorvaldur Gylfason verði forstjóri Seðlabankans (aleinn) og Vilhjálmur Bjarnason forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Ég vil fá nokkra viðmælendur úr Silfri Egils sem aðra ráðherra og bankastjóra. Ég vil, að eingöngu útlendingar verði í uppgjörsnefndinni. Þar á meðal Robert Wade, öðru nafni Blefken að sögn HHG.