Myndin af Alþingi er laukrétt

Punktar

Skúli Helgason í Samfylkingunni segir fjölmiðla gefa ranga og villandi mynd af störfum Alþingis. Þau fari fram í nefndum, en ekki á uppákomum morfís-bjána á sjónvarpsfundum. Ég sé ekki, hvernig hægt er að skauta þannig hjá þungamiðju Alþingis, formlegu þinghaldi þess. Fundir í þingsal og atkvæði í þingsal hljóta að vekja mesta athygli. Þetta er sjálft andlit Alþingis. Ef andlitið er afmyndað af hazar og heimsku, er það alþingismönnum að kenna. Ekki fjölmiðlum. Sú mynd, sem þjóðin hefur af Alþingi, er sú mynd, sem þingmenn setja sjálfir í gluggann. Mynd af algerum aulum í morfís-hazar.