Misnotkun orðanna

Punktar

Dómari í New York hefur leyft fólki að höfða hópmál gegn framleiðendum sígarettna fyrir að kalla þær “léttar”. Hann telur allar sígarettur vera þungar. Þetta minnir mig á, að einokunarfyrirtækið Mjólkursamsalan kallar jógúrt “sykurskerta”, þótt hellt sé sykri út í hana, bara minna magni en venjulega. Það minnir mig líka á, að morgunkorn er auglýst 99% fitulaust, sem þýðir, að það hefur 1% fitu, sem auðvitað er ekki nógu gott. Fyrsti sölumaður snákaolíu á Íslandi af þessu tagi var seðlabankastjórinn Jóhannes Nordal, sem fann upp orðið “gengisbreyting” yfir gengislækkun.