Bæjarfélög geta leyft sér að styðja íþróttir á þeirri forsendu, að þær bæti heilsu íbúanna. Þau geta líka leyft sér að styðja þær misjafnt, ef ástæður eru ljósar. Til dæmis er sund mesta almenningsíþróttin. Því má niðurgreiða aðgöngumiða og jafnvel láta fátæka hafa þá frítt. Skíðamennska er dæmigert fjölskyldusport og ætti því að geta fengið sérstakan stuðning. Sama gildir um hestamennsku. Golf er hins vegar sport fyrir aldraða karla og skorar því ekki eins hátt í matinu. Hinar ýmsu boltaíþróttir fá rosalegan stuðning, til dæmis í samanburði við skíðin. Væri ekki hægt að tálga smávegis af boltanum?