Meira, meira og fylla

Punktar

Kristinn Finnbogason bauð mér einu sinni að loknum stjórnarfundi Blaðaprents í Klúbbinn, þá helzta skemmtistað landsins. Kristinn var þar meðeigandi með ýmsum þekktum Framsóknarmönnum og kraftaverkamönnum. Hann fann dálítið til sín, fór með mig á einn af sjö börum hússins, bauð mér koníak. Barþjónn kom með risavaxið belgglas og hellti í botninn á því eins og lög gera ráð fyrir. “Meira” sagði Kristinn og þjónninn bætti öðrum sjússi ofan á. “Meira” sagði Kristinn og þjónninn hellti upp í belginn, þar sem hann var breiðastur. “Fylla” sagði þá Kristinn. Glasið var hellt fleytifullt og rúmaði treikvart flösku. (Úr bókinni: Jónas Kristjánsson: Frjáls og Óháður, 2009)