Maurapúkar flýja á haf út

Punktar

Græðgisfólk Bandaríkjanna hefur það umfram græðgisfólk Íslands að geta lokað sig af í víggirtum hverfum. Þar getur það verndað sig fyrir fólkinu, sem það lætur vinna fyrir sig á sultarkjörum. Sem býr í hverfum húsvagna. Auðfólkið á toppnum hugsar sér nú til hreyfings úr víggirtu hverfunum. Undirbúin eru fljótandi hverfi á grunnsævi utan landhelgi. Um ráðagerðir þessar má lesa í Independent í dag. Auðfólkið á það sameiginlegt að vilja ekki leggja fé til sameiginlegra þarfa. Væntir þess að geta sloppið alveg við skatta með því að flytja ríkisfang sitt í byggðir utan við landhelgi allra skattstofa heims.